Kvennaverkfall 24. október leikskólinn lokaður

Kæru foreldrar og forráðamenn

Eins og flestum er kunnugt hafa fjölmörg samtök kvenna og launafólks blásið til heils dags kvennaverkfalls þann 24. október næstkomandi.

Í Teigaseli starfa yfir 20 starfsmenn og allt starfsfólk leikskólans eru konur. Allir starfsmenn leikskólans hafa upplýst stjórnendur um áhuga sinn að taka þátt og munu því leggja niður störf þennan dag.

Af þessum sökum mun allt skólastarf í Teigaseli falla niður þriðjudaginn 24. október. Þann dag ætla allar konur að sýna samstöðu og huga að jafnréttismálum á eigin heimili og í samfélaginu almennt.