Skipulagsdagur og skráningadagar

Á morgun fimmtudag 15. febrúar er skipulagsdagur í Teigaseli og leikskólinn því lokaður. Á föstudag og mánudag eru svo skráningardagar og einungis opið fyrir þau börn sem eru skráð í mætingu þessa daga. 

Við áttum flottan dag í dag, alls konar kynjaverur voru í leikskólanum og að sjálfsögðu var kötturinn í tunnunni á sínum stað.
Góða helgi þið sem eruð komin í frí. Við sjáum ykkur hin á föstudaginn.