Sumarlokun leikskólanna 2024

Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum 7. febrúar sl. að sumarleyfi leikskólanna sumarið 2024 verði fjórar vikur og að lokað verði frá 8. júlí til og með 2. ágúst. Ráðið fellst einnig á beiðni leikskólastjóra um að til framtíðar miðist 4 vikna sumarlokun leikskólanna við að opnun eftir sumarleyfi verði þriðjudagurinn eftir Verslunarmannahelgi.