- 24 stk.
- 20.03.2023
Dagur stærðfræðinnar er 14. mars og við í Teigaseli tökum að sjálfsögðu þátt í þessum degi. Dagsetningin á þessum degi hefur aðeins flakkað í gegnum árin en nú er verið að gera eins og allir hinir að elta töluna PI sem er 3.14 eða 14. mars.
Við unnum ýmis verkefni tengd stærðfræðinni á öllum deildum. Teigakot var með risaeðluþema samhliða og voru búin að útbúa Grameðluspor í raunstærð. Mesta spennan var að vita hvað það kæmust mörg börn inn í sporið.