Útskrift

Föstudaginn 24. maí var árgangur 2018 formlega útskrifaður úr Teigaseli. Útskriftin var haldin í Tónbergi.
Börnin sungu nokkur lög sem þau voru búin að æfa og enduðu svo á því að sýna dans.
Íris og Heiða afhentu börnunum útkriftarskjöl og birkiplöntu. Þótt formlegri útskrift sé lokið, eru börnin þó ekki öll hætt í leikskólanum. Við fáum að njóta samvista við þau eitthvað fram á sumarið. Takk elsku útskriftarbörn og foreldrar fyrir samfylgdina í gegnum leikskólagönguna og vegni ykkur vel í framtíðinni.